Verðskrá verkstæðis
-
Skoðunargjald - 4.900 kr.
Bilanagreining. Viðskiptavinur hættir við viðgerð eftir greiningu eða engin bilun finnst í búnaði. Skoðunargjald er tekið fyrir bilanagreiningu á búnaði. Skoðunargjald fellur niður ef ákvörðun er tekin um frekari viðgerð.
Greiða þarf skoðunargjald þótt engin bilun finnist, á það einnig við um tæki þar sem ábyrgð er í gildi. - Þrif á prentara / prenthaus - 4.900 kr.
-
Lágmarkstímagjald - 15.996 kr.
Lágmarkskostnaður við hverja viðgerð. -
Forgangsþjónusta - 16.900 kr.
Forgangsþjónusta miðast við að tæki sé komið á borð tæknimanns innan 2-5 klst. frá því að það kemur inn á verkstæði.
Forgangsþjónusta er ávallt gjaldskyld og á það einnig við um búnað þar sem ábyrgð er í gildi. Gjald fyrir forgangsþjónustu bætist við viðgerðarkostnað búnaðar. -
Útkall - 16.864 kr.
Gildir á höfuðborgarsvæðinu. Kostnaður viðgerðar er ekki innifalinn. Ef búnaður er ekki í ábyrgð bætist Lágmarksgjald ofan á verð Útkalls.