Nafn fyrirtækisins: Skrifstofuvörur ehf., kt. 560805-0390 rekur vefinn www.skrifstofuvorur.is hér eftir nefnt söluaðili í skilmálum þessum.


Innsláttarvillur: Starfsmenn söluaðila reyna eftir fremsta megni að tryggja að réttar upplýsingar séu á vefsíðum og vefverslunum sem reknar eru af félaginu. Engin ábyrgð er tekin á innsláttarvillum, myndbrengli eða röngum og úreltum upplýsingum. Reynist pöntuð vara vera ófáanleg áskilur söluaðili sér rétt til að hætta við pöntunina.
Verð: Verð á vörum á vefsíðu söluaðila er staðgreiðsluverð með 24% virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram. Verð geta breyst án fyrirvara
Afgreiðslufrestur: Í flestum tilfellum eigum við þær vörur sem eru á vefverslun okkar, ef svo reynist ekki er afgreiðslutími pantana einn til átta sólarhringar eftir því um hvaða vörur er að ræða.
Afhending vöru: Afhending vöru fer fram í verslun Skútuvogi 11,  með Íslandspósti samk. gjaldsgrá. 
Ábyrgð: Ábyrgð nær til framleiðslugalla og efnisgalla á vörum sem seldar eru hjá söluaðila. Ábyrgðartími er í tvö ár frá útgáfudegi reiknings sem jafnframt gildir sem ábyrgðaskírteini. Söluaðili ber á engan hátt ábyrgð á slæmri eða rangri meðhöndlun vörunnar eða skemmdum í flutningi. Söluaðili er ekki ábyrgur fyrir afleiddum skaða sem rekja má til gallaðra vöru. Viðgerðir vegna ábyrgða skulu fara fram á verkstæði söluaðila  eða öðru verkstæði sem söluaðili samþykkir. Flutningskostnaður til og frá verkstæði fellur ekki undir ábyrgð. Vara fellur úr ábyrgð ef annar en söluaðili gerir við vöru eða gerir tilraun til viðgerðar.
Skilaréttur: Skilaréttur er í 30 daga frá útgáfudegi reiknings. Vöru sem er skilað skal vera í upprunalegri pakkningu og ástandi, órofið innsigli og allir fylgihlutir með. Söluaðili áskilur sér rétt til að yfirfara vöru áður en hún er tekin til baka. Ef verðbreytingar verða á vöru á þessum 30 dögum er hún tekin til baka á gildandi söluverði þann dag, þó ekki á hærra verði en upprunalegu verði vörunnar.
Eignaréttarfyrirvari: Hið selda er eign söluaðila þar til verð er að fullu greitt. Samþykktir víxlar, skuldabréf eða greiðsla með ávísunum afnema ekki eignaréttinn fyrr en full greiðsla hefur borist.

Trúnaður (Öryggisskilmálar):  Söluaðili heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Newsletter

A short sentence describing what someone will receive by subscribing