Er prentarinn ekki að skila sínu?

Prentarar eru eins og bílar, tölvur og önnur tæki sem við notum reglulega þeir þurfa reglulegt viðhald. Áður en þú kemur með prentarann til okkar eða hringir í okkur þá er best að greina aðeins vandamálið með nokkrum spurningum:

Bleksprautuprentarar:

  • Prentarinn er hættur að prenta alla liti eða rákir koma á blaðið
  • Prentarinn tengist ekki þráðlaust
    • Lausn 1: Skiptir þú um beini/router? Prentarinn þinn "þekkir" ekki nýja beininn. Stilla þarf prentarann upp á nýtt til að nota með nýja beninum. 
    • Lausn 2: Eyddu út prentaranum í tölvunni þinni og settu hann upp aftur.

     Laserprentarar

     Prentarinn er hættur að prenta alla liti eða rákir koma á blaðið

      • Tónerhylkið eða tromlan er biluð. Ef langt er síðan þú skiptir um tónerinn eða tromluna þá er hylkið sennilega tómt eða tromlan búin að þjóna út sinn tíma. Þú þarft að endurnýja hylklið og/eða tromluna.
      • Ef þú ert búin(n) að skipta um tóner/tromlu og enn koma rákir þá er eitthvað meira að gerast hjá þér. Kíktu með prentarann til okkar.
    • Prentarinn tengist ekki þráðlaust
      • Lausn 1: Skiptir þú um beini/router? Prentarinn þinn "þekkir" ekki nýja beininn. Stilla þarf prentarann upp á nýtt til að nota með nýja beninum. 
      • Lausn 2: Eyddu út prentaranum í tölvunni þinni og settu hann upp aftur. 

    Skrifstofuvörur reka gott verkstæði og við gerum allt sem við getum til að viðhalda gömlum prenturum fyrir viðskiptavini okkar til að lækka prentkostnað þeirra. Ef prentarinn þinn er eitthvað bilaður kíktu þá með hann til okkar.

    Ekki koma með hylkið, komdu með prentarann, þú myndir koma á bílnum ef við værum bílaverkstæði ;-).

    Newsletter

    A short sentence describing what someone will receive by subscribing