Leit að hylkjum
Það er auðvelt fyrir þig að finna hylkin í prentarann þinn. Þú einfaldlega smellir á stækkunarglerið hér efst til hægri og setur inn nafnið á prentaranum þínum. Til dæmis ef þú værir að leita hylkjum í Canon IP7250 þá nægir að setja inn IP7250 og birtast þá hylkin sem passa. Ef þú finnur ekki hylkin, sendu þá til okkar fyrirspurn á sala@skrifstofuvorur.is og vi sendum þér slóðina á hylkin sem passa.
Blek er ekki bara blek!
Þú finnur blek frá upprunanlegum framleiðendum eins og Canon, Epson, Brother og HP hér en einnig er að finna ódýrari samheita blekhylki frá G&G Ninestar.
Frá árinu 2009 höfum við boðið upp á ódýrari blekhylki frá ýmsum framleiðendum. í dag bjóðum við aðeins blekhylki frá G&G Ninestar sem er selt í yfir 70 löndum
Ninestar hefur í samstarfi við Tækniháskólann í Dalian í Kína fundið upp pigment blek sem gefur ljósmyndum endingu í yfir 100 ár. Í dag er Ninestar eini framleiðandi samheita blekhylkja sem framleiðir blek með þessari endingu.
Þú getur treyst Ninestar blekinu í prentarann þinn, fleiri þúsund klukkustundir hafa farið í prófanir á hylkjunum, blekinu og minniskubbunum í hylkjunum til að tryggja gæðin og rekstraröryggi þitt.
Ef þú vilt fræðast meira um Ninestar, smelltu þá á myndina hér að ofan.























